Þegar maður er í fæðingarorlofi með ungabarn sem sefur óreglulega er maður svoldið bundinn að því að baka eitthvað sem er einfalt og fljótlegt. Þessi uppskrift uppfyllir þær kröfur mjög vel 🙂 Seigir karamellu-hafrabitar 5 dl hafrar 2,5 dl hveiti 2,5 dl sykur 1,5 tsk lyftiduft 3/4 dl síróp 125 gr smjör, bráðið 1 egg… Halda áfram að lesa Seigir karamellu-hafrabitar
Valentínusar marengs
Valentínus er handan við hornið 🙂 Þessi marengs hjörtu eru skemmtileg leið til að koma einhverjum sérstökum á óvart 🙂 Mörgum þykir marengs góður einn og sér, aðrir vilja hafa rjóma með og þá helst þannig að marengsinn blotni svolítið. Hérna er um að gera að láta ímyndunaraflið ráða ferð og gera eitthvað skemmtilegt :)… Halda áfram að lesa Valentínusar marengs
Sænskar kjötbollur
Eitt af því sem kom mér á óvart þegar við fluttum til Svíþjóðar var að Svíar borða kjötbollurnar sínar við öll tækifæri, á mánudögum og laugardögum, á jólunum, á jólahlaðborðum, á midsommar-hátðinni (sem er nærri stærri en jólin) - já, Svíar láta sér ekkert tækifæri til að borða köttbullar ganga úr greipum! Eftir 5… Halda áfram að lesa Sænskar kjötbollur
Rúgbrauðið hans pabba
Það væri ofsögum sagt að hann pabbi okkar baki oft og mikið. Hann á það nú samt til að skella á sig svuntunni og snara fram ljúfmeti og þar á meðal er þetta stórkostlega góða rúgbrauð sem er í miklu uppáháldi hjá öllum sem það hafa smakkað. Frábært að skella því í ofninn yfir nótt,… Halda áfram að lesa Rúgbrauðið hans pabba
Rice Krispies Cake with Bananas, Whipped Cream and Caramel.
**Ég set þessa uppskrift inn á ensku, ástæðuna fáið þið neðst í póstinum, eftir bloggfærsluna. Rice Krispies Cake with Bananas, Whipped Cream and Caramel. Cake 100 gr butter 100 gr dark chocolate 100 gr mars chocolate bars 4 tablesp. light syrup 5 cups/12,5 dl Rice Krispies Melt the butter on low heat in a pan,… Halda áfram að lesa Rice Krispies Cake with Bananas, Whipped Cream and Caramel.
Stökkar hafraflögur
Græðgin grípur mann stundum og þá er aldrei að vita hvað verður til í eldhúsinu. Fyrir jól fékk ég litla smákökuuppskriftabók með hemabakat blaðinu mínu, í henni fann ég uppskrift að stökkum hafraflögum sem heita á frummálinu knäckiga havreflarn. Þessar smákökur eru meira eins og konfekt heldur en kökur en þær vöktu mikla lukku. Mér… Halda áfram að lesa Stökkar hafraflögur
Cinnabon ostakaka
Ég er komin með nett æði fyrir ostakökum. Þegar ég var yngri fannst mér þær hreinn viðbjóður, en í dag læt ég mig dreyma um rjómann, rjómaostinn og sykur sæluna sem ostakökur eru. Ég ólst upp við ostakökur sem voru frystar og með kexbotni. Þessi er ekki þannig, heldur er hún bökuð og hefur engann… Halda áfram að lesa Cinnabon ostakaka
Heimagerð hamborgarabrauð
Hefur ykkur ekki alltaf dreymt um að baka eigin hamborgarabrauð? Ekki það? Skrítið 😉 Ég rakst e-n tíman á uppskrift að hamborgarabrauðum og ákvað að þau hlytu að vera miklu betri heldur en búðarbrauðin. Ég meina, það er jú auðvitað eiginlega allt heimabakað betra en búðarkeypt að mínu mati. Binni eldaði pulled pork í morgun… Halda áfram að lesa Heimagerð hamborgarabrauð
Súkkulaðipavlovan hennar Nigellu með berjum
Jæja, þá er Tobba búin að skella inn áramótadessertinum sem hún bauð upp á og kannski ekki seinna vænna fyrir mig en að gera slíkt hið sama, ekki nema 17 dagar frá áramótum (hvert fer tíminn?)! Ég hef aldrei bakað pavlovu áður, ef ég á að vera alveg hreinskilin þá er ég hálf hrædd við… Halda áfram að lesa Súkkulaðipavlovan hennar Nigellu með berjum
Flan eða Crème caramel
Þessi eftirréttur er algert nammi og ekki skemmir fyrir að hann lítur út fyrir að maður þurfi að vera eitthvað sjéní í eldhúsinu til að geta gert hann. Ó nei það get ég sagt ykkur að maður þarf ekki að vera. Það sem gæti helst klikkað er karamellan en hún getur brunnið við á örskotsstundu.… Halda áfram að lesa Flan eða Crème caramel