Við bökuðum ekki bara stærðarinnar piparkökuhús um helgina heldur bökuðum við líka hefðbundnar piparkökur og skelltum okkur í bæjarferð. Það var eiginlega lyginni líkast að þegar Tobba lagði af stað til Stokkhólms á föstudaginn var þá byrjaði að snóa þessum líka yndislega jólasnjó. Við hefðum ekki getað beðið um jólalegri stemningu í bænum á laugardeginum… Halda áfram að lesa Piparkökur og bæjarferð
Flokkur: Jól
Piparkökuhús 2012
Við systurnar höfum haft það fyrir sið nokkur undanfarin ár að hittast og baka saman piparkökur og búa til okkar eigið piparkökuhús. (hér má sjá myndir af afrekum undanfarinna ára) Okkur langaði alltaf til að gera piparkökuhús sem börn og auðvitað á maður að láta draumana rætast, stóra sem smáa 😉 Síðasta helgi var piparkökuhelgin… Halda áfram að lesa Piparkökuhús 2012
Súkkulaðibitasmákökur með oreo
Í ljósi þess að desember er rétt handan við hornið og vegna þess að það er búið að snjóa örlítið hjá mér í dag þá finnst mér rétt að taka tvist á áskoruninni og baka bara jólabakstur fram að jólum. Ég er ekkert endilega bara í hefðbundnum jólasmákökum í desember, mér finnst gaman að prófa… Halda áfram að lesa Súkkulaðibitasmákökur með oreo
Hnetusmjörs-smákökur
Ég bakaði þessar smákökur fyrir nokkrum árum síðan og þær koma alltaf upp í hugann af og til þannig að ég ákvað að henda uppskriftinni hérna inn til að fleiri gætu notið hennar. Það var mjög auðvelt að búa til þessar kökur og svo eru þær þægilegar fyrir augað líka 😉 Ég notaði saltaðar jarðhnetur… Halda áfram að lesa Hnetusmjörs-smákökur
“The Chewy” Chocolate Chip Cookie
Ég er búin að vera í stuði fyrir smákökur síðustu daga og þá er auðvitað málið að baka þær bara til að svala þörfinni. Ég átti við þann leiðinlega vanda að stríða að lesa uppskriftir ekki nógu vel eða bara hlaupa yfir þær og oft var ég komin í tóma vitleysu þegar ég loksins las… Halda áfram að lesa “The Chewy” Chocolate Chip Cookie
Súkkulaði hnetusmjörs smákökur
Oft baka ég bara til að baka. Ég fer á stúfana til að finna eitthvað til að baka og þá verður uppskriftin að uppfylla þær kröfur að ég eigi allt í hana sem til þarf. Ég nenni yfirleitt ekki að "stökkva" útí búð þar sem það er hálftíma opperasjón með 6 mánað gamalt barn… Halda áfram að lesa Súkkulaði hnetusmjörs smákökur
Súkkulaðibitasmákökur
Mér finnst súkkulaðibitakökur alveg ferlega góðar. Þ.e. þegar þær eru mjúkar að innan og stökkar að utan. Sem virðist vera mjög erfitt að ná fram í kökum (nema með einhverjum svona "kæla í 7000 klst áður en bakað er"-tilfæringum). Ég nenni ekki svoleiðis - ég er sennilega ekki þolinmóðasta týpan í bænum ... Allavega, einu… Halda áfram að lesa Súkkulaðibitasmákökur
Piparkökumöffins
Það var næstum óbærilegt að setja ekki-góða uppskrift hér inn í gær. Bókstaflega. Ég reyndi að hrista tilfinninguna af mér (sem og slepjulegt bragðið af möffinsunum) en allt kom fyrir ekki og í hádeginu í dag missti ég stjórn á mér og skellti í aðra uppskrift. Ég smakkaði fyrir jólin í fyrra æðislega góð piparkökumöffins… Halda áfram að lesa Piparkökumöffins
Piparkökuhús fyrri ára
Hér koma nokkrar myndir af afrekum fyrri ára 🙂