Eins og svo oft áður var ég að horfa á FoodNetwork og þar sá ég Inu Garten fjalla um uppáhalds súkkulaðiuppskriftirnar sínar. Hún var með einhverjar rosalega fínar súkkulaði-cupcakes með hnetusmjörkremi. Kökurnar sjálfar hentuðu ekki fyrir mig þar sem í þeim er sýrður rjómi. Sýrðan rjóma er ekki hægt að fá laktosa frían og ég reyni eftir mesta megni að gera allar mína uppskriftir þannig að elsta dóttir mín megi borða þær, en hún er með laktosaóþol. Það má í raun nota hvaða súkkulaðiköku sem þið viljuð fyrir þessar cupcakes
Ég notaði súkkulaðiköku uppskriftina frá mömmu (þessa sem ég nota alltaf). Hún passaði fullkomlega í 18 stór cupcakes form. Ég bakaði þær við 175°c í ca 20 min. Einnig er hægt að baka og nota þessar djöflatertu-cupcakes sem eru djúsílúsí.
Hnetusmjörkrem
1 bolli /125 gr flórsykur
1 bolli / 250 gr hnetusmjör
5 msk / 75 gr smugger
3/4 tsk vanilludropar
1/4 tsk salt
1/3 bolli / 5 msk rjómi
hnefafylli af hökkuðum salthnetum
Hrærið saman flórsykri, hnetumsmjöri, smjöri, vanilludropum og salti. Bætið rjómanum við og þeytið í svolitla stund þar til að kremið verður létt (pínu flöffí). Setjið kremið á kaldar kökurnar og stráið salthnetum yfir.
Ein athugasemd á “Súkkulaði cupcake með hnetusmjörskremi”