Þegar við systurnar vorum litlar fékk fjölskyldan au-pair frá Noregi. Hún kom með meðsér uppskrift af norskum kanilsnúðum sem hafa verið bakaðir ótæpilega oft síðan þá – þetta voru sennilega snúðarnir sem gerðu okkur að bulla-(og kanil)fíklum! Allir vita að við systurnar erum miklir kanilaðdáendur og núna þegar ég er að heimsækja Stínu í sænska haustleyfinu fannst okkur upplagt að prófa nýja uppskrift að kanilsnúðum. Í þetta sinn varð uppskrift að sænskum kanelbullum fyrir valinu sem við fundum á matklubben.se og fékk hæstu einkunn þar. Og hún olli svo sannarlega ekki vonbrigðum. Ef e-r ætlar að baka kanilsnúða og halda einhverjum votti af sjálfsstjórn eftir þá er þetta ekki rétta uppskriftin til að prófa…
ATH: Þegar ég (Stína) baka með geri strái ég þurrgerinu alltaf beint út í hveitið og hræri vel og hita ekki vökvann sérstaklega áður en ég blanda honum saman við hveitiblönduna. Ég hef lesið að þetta sé óþarfi (sjá t.d. hér ) og aðferðin hefur reynst mér vel (jafnvel og að setja gerið út í vökvann). Ég hef aftur á móti fengið fyrirspurnir um þetta og hef fundið að sumir eru hikandi við að prófa þessa „nýju“ aðferð. Ég mæli þ.a.l. með því að þið haldið ykkur við þá aðferð sem ykkur finnst þægilegust og þið eruð vön 🙂
Hráefni
Deig
5 tsk/1 pakki þurrger
150 gr smjör
3 dl mjólk
2 dl rjómi
1/2 tsk salt
1 dl sykur
1 tsk kardimommuduft
1 egg
13 dl hveiti
Fylling
Smjör að vild
Nokkrar tsk kanill
Sykur
Ofan á snúðana
Egg til penslunar
Perlusykur
Blandið saman þurrgeri, hveiti, sykri, salti og kardimommu. Bræðið smjörið, blandið saman mjólkinni og rjómanum og hitið það með smjörinu þar til vökvinn er við líkamshita eða 37 °c. Blandið mjólkur/smjör blöndunni og eggi út í hveitiblönduna og hnoðið vel (annað hvort með hnoðaranum í hrærivél eða í höndum). Látið hefast í ca. 40 mínútur eða þangað til deigið hefur u.þ.b. tvöfaldast.
Fletjið helminginn af deiginu út á borð með smá hveiti undir. Setjið smjör og kanilsykur á deigið og rúllið upp frá langhliðinni.
Skerið rúlluna í 2 cm breiða bita og setjið í pappírsform (ath þó að í Svíþjóð fást sérstök snúðaform, ég er ekki viss um að þau fáist á Íslandi. Þá sleppir maður þeim bara 🙂 ). Látið snúðana hefa sig undir viskustykki í 20 – 30 mínútur og stillið ofninn á 200 gr.
Penslið snúðana með eggi sem er búið að slá í sundur og stráið perlusykri yfir. Bakið í miðjum ofni í 8 – 10 mínútur, eða þar til snúðarnir eru gullinbrúnir. Borðið helst strax.
3 athugasemdir á “Sænskir kanilsnúðar”