Ég rakst á uppskrift að nutellasnúðum (eða snurror eins og þetta heitir á sænsku). Hér í Svíþjóð er mjög algengt að í staðin fyrir að rúlla snúðum upp á hefðbundinn hátt að búa til svona „snurror“ úr þeim og ég ákvað að spreyta mig á þessu í síðustu viku.
Ég notaði snúðadeigið frá mömmu til verksins, gerði hálft deig og skipti því svo í tvo hluta. Fyrri hlutinn misheppnaðist frekar mikið hjá mér vegna þess að a) ég flatti deigið of þunnt, b) setti of mikið súkkulaði á deigið, c) gerði of mjóar ræmur. Passið ykkur þ.a.l. á þessu þrennu!
Súkkulaðisnúðar
ATH: Ég gerði bara úr hálfri uppskrift!
150 gr kalt smjör
6 dl mjólk
2 egg
75 gr ferskt ger (7,5 tsk eða 22,5 gr þurrger)
2 dl sykur
1/2 tsk salt
1 tsk kardimommukrydd
1 kg hveiti
Fylling
1 – 2 dl af nutella og jafn mikið af smjöri, hrært saman – magnið er samt að sjálfsögðu smekksatriði 🙂
Öllum þurrefnum blandað saman. Smjörið mulið saman við. Eggin slegin í sundur og blandað saman við mjólkina. Gerið leyst upp í eggjamjólkublöndunni (eða þurrgerið ef því er að skipta, það mætti líka setja þurrgerið beint út í hveitiblönduna og blanda ásamt hinum þurrefnunum) og henni svo hrært saman við þurrefnin. Hnoðað vel (í höndum eða í hrærivél). Látið lyfta sér í ca. klst. Deiginu er svo skipt í þrjá jafnstóra hluta.
Sjá leiðbeiningar að neðan varðandi hvernig snúðarnir eru gerðir:
Flatt út í ferhyrning (ef þið notið heila uppskrift, skiptið þá í u.þ.b. fernt), nutellasmjörinu smurt á, deigið lagt saman og skornar út ræmur. Hverri ræmu snúið upp og sett saman í hring. Snúðarnir penslaðir með eggi. Bakað við 180 gráður, þar til snúðarnir eru gullinbrúnir.
Passið ykkur á að fletja deigið ekki of þunnt út, og hafa ræmurnar ekki of mjóar!




