Eflaust eru einhverjir sem bara dæsa þegar þeir sjá enn eina „kanil-eitthvað“ uppskrift frá mér. Ég ræð bara ekki við mig, mér finnst þessi samsetning yfirnáttúrulega góð og þegar ég sé eitthvað nýtt á þessum nótum verð ég nánast alltaf að prófa 🙂 Þessi kaka var framar öllum væntingum (enda nóg af sykri og gúmmelaði haha) – mikið svakalega fannst okkur hún góð (og þá ekki síst mér 😉 ) Og ótrúlega fljótleg, sennilega með fljótlegustu kökum sem ég hef bakað. Þetta er semsagt ekki hefðbundin snúðakaka, þar sem snúðum er raðað þétt saman í form og bakaðir þannig heldur er þetta einfaldlega hefðbundið kökudeig með slettum af snúðafyllingu í og glassúr ofan á.
Kanilsnúðakaka
Deigið:
390 gr hveiti
1/4 tsk salt
200 gr sykur (ég setti aðeins minna, kom ekki að sök)
4 tsk lyftiduft
3,75 dl mjólk
2 egg
1 tsk vanilludropar
115 gr smjör, brætt
Ofan á kökuna/fylling:
230 gr smjör, mjúkt
220 gr púðursykur
2 msk hveiti
1 msk kanill
Glassúr:
260 gr flórsykur
5 msk mjólk
1 tsk vanilludropar
Hitið ofninn í 175 gráður. Smyrjið stóra ofnskúffu.
Deig: Hrærið saman hveiti, salti, sykri, lyftiduft, mjólk, eggjum og vanilludropum í hrærivél eða með handþeytara. Þegar þetta er orðið vel blandað saman hrærið þá brædda smjörinu hægt út í. Hellið deiginu í ofnskúffuna.
Fylling: Blandið saman smjörinu í fyllinguna, púðursykrinum, hveitinu og kanil þar til orðið alveg slétt. Setjið „slettur“ af fyllingunni á kökuna (c.a. eina msk í einu), nokkuð þétt. Takið svo hníf og notið til að dreifa úr fyllingunni yfir alla kökuna (sjá mynd – ég hefði mátt dreifa aðeins betur úr fyllingunni hjá mér, verið óhrædd við það).
Bakið við 175 gr. c í 35-40 mínútur eða þangað til að tannstöngull kemur hreinn úr kökunni.
Glassúr: blandið saman flórsykri, mjólk og vanilludropunum. Setjið yfir kökuna. (ATH: mér fannst þetta fullmikill glassúr og notað hann ekki allan, þetta er auðvitað smekksatriði 🙂 )


Var að baka þessa og hún er dásamlega djúsí:)
Gaman að heyra – okkur fannst hún nefnilega dásamlega djúsí líka 😀