January 10, 2018 by eldhussystur
Binni eldaði þessa stórkostlegu súpu fyrir okkur um helgina og hún var gjörsamlega trufluð! Ég bað hann um að skrifa niður uppskriftina, sem hann gerði með glöðu geði. Hann eldaði hins vegar risaskammt af súpunni (sem við höfum svo tekið með okkur í hádegismat) sem endurspeglast í magni hráefna haha. Mæli með að helminga hana ef þið eruð ekki jafn stórtæk og eiginmaður minn 🙂
Vetrarsúpa Binna
Fyrir minnst 8 – má auðveldlega helminga.
800 ml Passeraðir tómatar (Helst Polpa, Mutti eða Zeta)
2 msk tómatpúrra
1 flaska Heinz Chili sósa
2-3 teningar kjúklingakraftar eftir smekk
4 gulir laukar, gróft hakkaðir (Helst blandaðir laukar: rauðlaukur, schallots etc)
6 gulrætur
8 kartöflur
1.5 líter vatn
400 gr bacon
Salt og pipar
5-6 hvítlauksrif
Olía til að steikja
2 bollar rauðvín
1 líter matreiðslurjómi
Skera niður grænmeti og bacon gróft í minni bita. Gulrætur og kartöflur í stærri bita. Steikja allt saman í stórum potti með hvítlauk, salti og pipar þar til laukurinn er orðinn mjúkur.
Bæta við vatni, tómötum, púrru, rauðvíni og chilisósu. Látið malla í 1 til 1.5 tíma (mikilvægt að skera ekki suðutímann við nögl, sérstaklega út af rauðvíninu). Bæti við matreiðslurjómanum siðasta kortérið.
