Aðalréttir · Súpur · Vegan

Víetnömsk Núðlusúpa (v)

Ég elska súpur og ég elska núðlur. Við hjúin vorum reglulegir viðskiptavinir hjá Noodle Station og þessi súpa minnir á súpuna þar. Þegar ég datt niðrá þessa súpu varð ég bókstaflega ástfangin af henni. Ég hafði aldrei notað stjörnu anis eða kóríander fræ áður! Þegar ég borða kóríander þá finn ég sápubragð þannig að ég var ekkert súper spennt að setja fræin í súpuna. Ég er samt vön að fylgja uppskriftum þegar ég er að elda eitthvað í fyrsta skipti og ég sá ekkert eftir því, ekki vottur af sápubragði 😉 Við erum búin að elda hana margoft og hún er alltaf jafn góð. Við eldum alltaf tvöfalda uppskrift.

Víetnömsk núðlusúpa 

1 stór laukur, tekið utan af honum og helmingaður

5 cm bútur ferskt engifer (flysjað)

1 kanilstöng

1 stjörnu anis

2 heilir negulnaglar

1 tsk kóríander fræ

1 líter grænmetissoð

2 tsk sojasósa

4 gulrætur, flysjaðar og skornar gróft niður

ca 250 gr hrísgrjónanúðlur

Sveppir

muldar salthnetur

sriracha sósa

hakkaður steiktur hvítlaukur

sykur

Byrjið á því að grilla laukinn og engiferinn, setjið hann á ofnplötu og inní ofn á 200°c og á grill stillingu. Grillið þar til laukurinn og engiferinn er byrjað að brenna aðeins.

Á meðan laukurinn grillast eru kanilstöngin, anisinn, negulnaglarnir og kóríanderfræin sett í pottinn sem súpan verður gerð í og kryddin þurrsteikt á miðlungs hita þar til þau fara að ilma. Passið að hræra til að kryddin brenni ekki við. Þegar kryddin eru byrjuð að ilma er soðið, sojasósan, gulrótarbitanir, laukurinn og engiferinn sett í pottinn með kryddunum.

Náið upp suðu og látið malla í 30 minútur.

Á meðan súpan mallar þá eru núðlurnar eldaðar.

Setjið nógu mikið af vatni í pott svo það hylji núðlurnar vel rúmlega þegar þær fara útí og náið upp suðu. Slökkvið undir pottinum og setjið núðlurnar útí. Bíðið þar til núðlurnar eru næstum tilbúnar. Þetta tekur 5-7 min og gott er að smakka núðlurnar reglulega. Þær ættu að vera eins og al-dente pasta.

Þegar núðlurnar eru tilbúnar þá eru þær skolaðar með köldu vatni til að þær verði ekki að steipuklessu.

Þegar  súpan er tilbúin þá er hún sigtuð og soðið sett í pottinn aftur. Gulrótar bitarnir eru týndir úr því sem var sigtað frá og settir í súpuna. Ef nota á sveppi þá eru þeir skornir niður og settir út í súpuna núna. Leifið súpunni að sjóða til að sveppirnir eldist aðeins.

Deilið núðlunum á milli 2 skála og ausið súpu yfir.

Ef þið viljið þá er hægt að setja smá steiktan hvítlauk, muldar salthnetur, 1/8 tsk sykur og ef þið viljið hafa súpuna sterka þá setjið þið aðeins af sriracha sósu útá.

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s