Jólin eru uppfull af hefðum og jólamaturinn er þar númer eitt!
Hefðirnar eru margar og mismunandi, það sem einum finnst ómissandi finnst öðrum óhugsandi. Á einhverjum tímapunkti flytja börnin að heiman og þá taka þau með sér þær jólahefðir sem þeim finnst ómissandi, sumum hefðum má ekki breyta en öðrum er breytt lítillega. Við systurnar erum aldar upp við að eftirrétturinn á aðfangadagskvöld sé Ris a la Mande. Þetta er réttur sem margir Íslendingar borða á jólunum. Þó svo að uppskriftin sé ekki flókin þá hef ég sjálf lent á vondu Ris a la Mande og er það kannski aðallega af því að það er ekki nákvæmlega eins og ég vil hafa það (eins og mamma gerir það) 😉
Við systurnar eru vanar að hafa hindberjasósu með grautnum. Ris al a Mand var ekki hefð heima hjá Halla og því er hann ekki vanur þessum graut. Hann vill frekar hafa karamellu út á sinn graut, og bjó ég því til karamellu fyrir hann með góðum fyrirvara (hún geymist í 2 vikur í ísskáp).
Ris a la Mande
fyrir 4
2.5 dl hrísgjón
2.5 dl vatn
7.5 dl mjólk
2.5 dl rjómi (Stína setur mun meiri rjóma en þetta, þetta er auðvitað smekksatriði 😉
1 mandla
Grjónin og vatnið eru soðin saman. Bætið mjólk saman við í nokkrum skömmtum og soðið saman rólega þar til grjónin eru mjúk. Mikilvægt er að hafa eins lítin hita og hægt, rétt nóg til að viðhalda suðu án þess að grauturinn brenni við. Grauturinn er kældur yfir nótt.
Rjóminn þeyttur og blandað saman við grautinn áður en hann er borinn fram. Best er að taka smá af rjómanum og blanda vel saman við grautinn (svona til að mýkja hann upp). Blanda svo afganginum af rjómanum saman við. Mandla er sett í eina skál og hulinn með graut (eða sett út í grautarskálina og hrært vel í ef maður vill vera alvöru, en það er kannski ekki raunhæft á heimilum þar sem grautarskálin er ekki tæmd alveg?).
Sósa
200 ml hindberjasaft
200 ml vatn
200 gr hindberjasulta
2 msk kartöflumjöl útí 1 dl af vatni
Saft, vatn og sulta eru sett í pott og hituð að suðu. Kartöflumjöli og vatni hrært saman og sett út í sósuna, til að þykkja að vild. Best er að setja bara lítið kartöflumjöl í einu og ná upp suðu á milli til að sjá hversu þykk sósan verður í raun.
….skemmtilegt hjá ykkur systrum, sumar uppskriftirnar vekja upp minningar um „gamla daga“ heima á Geitó. Gleðilegt ár frænkur mínar og takk…
Takk fyrir frænka og gleðilegt nýtt ár 🙂 Gaman að bloggið vekji gleið hjá fleirum en okkur.