Heitt Súkkulaði
150 gr konsum súkkulaði
1 L nýmjólk
salt á hnífsoddi
250 ml rjómi (þeyttur)
Aðferð
Hitið mjólkina á miðlungs hita. Þegar hún er orðin volg er saltinu og súkkulaðinu bætt út í í bitum. Hrærið reglulega í mjólkinni, ekki fara frá henni því mjólk er enga stund að sjóða uppúr. Hitið súkkulaðið að suðu og takið þá af hellunni.
Berið fram með þeyttum rjóma.