Gerbakstur

Kanilsnúningur

Hvaða rugl er það að sjá uppskrift og ég bara VERÐ að baka hana! Klukkan orðin meira en 21 og þetta er gerdeig. Ég átti meira að segja eftir að pakka fyrir ferðalagið mitt til Stokkhólms sem var á dagskránni morguninn eftir *hristi haus*. Ég var kannski örlítið þreyttari daginn eftir en ég hefði þurft að vera en ég sá sko ekki eftir því að hafa svona kanilsnúninga með mér í lestina 😉

IMG_3033

Kanilsnúningur

Deig
23 gr pressuger
1/4 bolli (60 ml) volgt vatn
1 bolli  (235 ml) volg súrmjólk (buttermilk)
4 msk (57 gr) smjör
3 msk (38 gr) sykur
1 stórt egg
1 tsk salt
1/4 tsk matarsódi
3 3/4 bollar (510 gr) hveiti

Fylling
2 msk (28 gr) brætt smjör
1/2 bolli (110 gr) púðursykur
1/2 tsk kanill

Glassúr
1 bolli (128 gr) flórsykur
1 msk (14 gr) brætt smjör
1 msk heitt vatn (eða eins og til þarf til að þynna út)
1/2 tsk vanillu dropar.

Aðferð
Leysið upp gerið í volga vatninu. Hrærið saman súrmjólk (buttermilk), smjör, sykri, eggjum, salti og matarsóda, að lokum bætið gerinu saman við og hrærið þar til vökvinn er vel blandaður saman. Hveiti er að lokum hnoðað saman við þar til degið er slétt og hætt að loða við skálina eða fingurnar. Ég nota KitchenAid en það er auðvitað jafn gott, ef ekki betra að hnoða deigið með höndunum.

Setjið deigið í skál, leggið hreint viskastykki yfir og leggið skálina á volgan stað í um 1,5 klukkustund eða þar til deigið hefur tvöfaldast.

Stillið ofninn á 180°C

Hnoðið deigið og fletjið það út í 45 x 23 cm rétthyrning. Burstið deigið með smjörinu.

IMG_3008

Blandið saman púðursykrinum og kanill saman, stráið því yfir degið.

IMG_3016

Brjótið degið saman í tvent eftir endilöngu. Klemmið saman endana.

IMG_3009

Skerið í 3 cm breiðar ræmur. Leggið ræmurnar á bökunarpappír með 6 cm millibilli. Snúið uppá hverja ræmu 2-3 sinnum.

IMG_3013

IMG_3022

Leggið hreint viskastikki yfir lengjurnar og látið hefast í 30 mínutur.

IMG_3017

Bakið lengjurnar í 12-15 min eða þar til þær eru gylltar. Kælið.

IMG_3023

Hrærið saman glassúr hráefnunum og dreifið yfir lengjurnar.

Gott að vita:

  • Þegar buttermilk eða súrmjólk er hituð verður hún kekkjót, það er allt í lagi 🙂
  • Þessir kanil snúningar eru fullkomnir til að frysta, muna bara að sleppa þá glassúrnum 😉

 

2 athugasemdir á “Kanilsnúningur

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s