Þeir sem hafa búið í Svíþjóð eða þekkja hér til vita eflaust að í Svíþjóð er saffran mikið notað í allskyns sætabrauð tengt jólum. Ég átta mig ekki alveg á því af hverju, sennilega hefur þetta verið það dýrasta og fínasta sem menn komust í – en hvernig sem það nú er að þá eru lussebullar (lúsíubollur) tengt órjúfanlegum böndum við sænskar jólahefðir. Þær eru ómissandi 13. desember á lúsíunni en saffran má svo einnig finna í ýmsu öðru góðgæti líka: kökum, ís, karamellum oflr.
Þó að hefðbundan lussebullar séu kannski ekki mjög spennandi bakkelsi að mati okkar Íslendinga, að þá er hægt að leika sér með þetta og það gera Svíar einmitt líka. Ég baka vanalega saffranslengjur með marsípani nokkrum sinnum í aðdraganda jólanna. Ég prófaði hinsvegar núna að gera líka saffransbollur með vanillusmjörkremi og það sló svo rækilega í gegn að ég kemst sennilega ekki upp með að gera neitt annað næst þegar ég baka saffransbakkelsi. Það eru til mýmargar uppskriftir að þessu góðgæti en þetta er sú uppskrift sem ég hef notað síðustu ár og hefur reynst mér vel sem grunnur.
Ég gef uppskrift hér að neðan að bæði saffranslengju og saffransbollum. Það er að sjálfsögðu hægt að gera bollur úr allri uppskriftinni, eða tvær lengjur. Nú eða helminga hana, ef fólki finnst þetta of stór uppskrift 🙂
Saffranslengja með marsípani og saffransbollur með vanillusmjörkremi
Hráefni í eina lengju og snúða (eða tvær lengjur)
200 g smjör
5 dl mjólk
14 gr þurrger (4 tsk)
1 gr saffran (mulið)
1/2 tsk salt
2 dl sykur
13 dl hveiti
Marsípanfylling
100 gr mjúkt smjör
100 gr rifið marsípan
Mjólk til penslunar
Perlusykur til skrauts
Vanillusmjörkrem
4 tsk vanillusykur
100 gr mjúkt smjör
Brætt smjör til penslunar
Strásykur
Aðferð – deig
Bræðið smjörið í potti og hellið mjólkinni út í. Hitið blönduna þar til hún er volg. Passið upp á að saffranið sé mulið og hrærið út í mjólkurblöndina.
Hrærið saman þurrefnunum: sykri, hveiti og salti. Hrærið þurrgerinu út í þurrefnin. Hellið mjólkurblöndunni út í og hnoðið vel. Bætið meira hveiti út í ef þarf.
Látið deigið hefast þakið í um 30 mínútur.
Setjið ofninn á 175°C. Skiptið deiginu í tvennt.
Saffranslengja með marsípani
Fletjið helminginn af deiginu út á hveitistráðan bekk, ca. 30×40 cm. Smyrjið fyllingunni í miðjuna á deiginu, sjá mynd. Skerið ræmur í deigið sitthvoru megin við fyllinguna (sjá mynd) og fléttið svo deigið saman. Klípið fyrir endana á deiginu (svo fyllingin leki ekki of mikið út). Penslið deigið með mjólk, og stráið perlusykri yfir.
Látið hefast í ca. 30 mínútur og svo bakað í 30 mín ca. Eða þar til gullinbrúnt.

Saffransbollur með vanillusmjörkremi
Fletjið helminginn af deiginu út á hveitistráðan bekk. Setjið vanillufyllinguna á helming deigsins (sjá mynd). Brjótið svo deigið saman um það þvert og skerið deigið í ræmur. Hverri ræmu er svo rúllað upp í það form sem óskað er eftir.
Látið hefast í ca. 30 mínútur. Bakað í ca. 20 mínútur eða þar til gullinbrúnt. Þegar bollurnar eru tilbúnar er bráðnu smjöri penslað ofan á þær og þeim dýft ofan í strásykur.






