
Eplið virðist ekki hafa fallið sérlega langt frá eikinni. Dóttir mín sem er 12 ára virðist hafa jafn gaman af því að baka og mamma sín og er barasta orðin ansi lunkin í eldhúsinu. Uppáháldskakan hennar þessa dagana er þetta hindberjapæ, sem er asnalega gott miðað við hvað það er einfalt. Fullkomin uppskrift til að leyfa upprennandi bökurum að spreita sig á 😀
Uppskriftin er fengin héðan, Camilla Hamid er afar vinsæll sænskur bloggari – upphaflega uppskriftin er reyndar með bláberjum en okkur finnst hindberjaútgáfan betri 🙂

Einfalda hindberjapæjið hennar Iðunnar
Fylling
500 gr frosin hindber
1/2 dl sykur
Deigið
175 gr smjör, brætt
2 dl sykur
Örlítið salt
3 dl haframjöl
1,5 dl hveiti
1 tsk lyftiduft
0,5 dl ljós síróp
Aðferð
Ofninn settur á 175 c.
Hindberjunum og sykrinum blandað saman í skál og sett í hringlótt pajform.
Smjörið brætt, þurrefnum og sírópi bætt út í og blandað vel saman. Deigið er svo sett yfir berjafyllinguna, slétt með hníf eða skeið.
Pæjið er bakað í miðjum ofni í ca. 40 mínúturu, eða þar til það er orðið gullinbrúnt. Borið fram með þeyttum rjóma eða ís.
