
Ég gerði þessa köku í einhverju bríaríi um helgina. Ég ætla að viðurkenna að mér tókst að fara ekki alveg eftir uppskriftinni: ég bræddi ekki smörið (óvart), ég átti ekki rétta stærð af formi og bakaði kökuna of stutt miðað við stærð formsins og ég notaði bara dökkan púðursykur og kakan er því dekkri en hún á að vera. Fjölskyldan reyndist hins vegar frekar sjúk í þetta þrátt fyrir að mér þætti ekki best heppnaða bakkelsi sem ég hef búið til svo ég læt uppskriftina frá mér, þrátt fyrir þessi „frávik“ 🙂 (Uppskriftin er fengin úr frábærri smákökubók sem heitir „Sally’s Cookie Addiction“.)

Stór súkkulaðibitakaka
330 gr hveiti
1 tsk matarsódi
1 tsk maízenamjöl
1/2 tsk salt
180 gr smjör, brætt og kælt örlítið
450 gr ljós púðursykur (það má líka taka hvítan sykur og púðursykur til helminga)
2 egg plús 1 eggjarauða, við stofuhita
1 tsk vanilludropar
270 gr súkkulaðibitar
120 gr grófhakkaðar valhnetur (má sleppa)
Hitið ofninn í 180°C. Klæddu botn og hliðar bökunarforms sem er ca. 20×30 cm með álpappír eða bökunarpappír. Sett til hliðar.
Blandið saman hveiti, matarsóda, maízenamjöl og salt saman í stórri skál. Sett til hliðar.
Þeytið smjör og púðursykur vel saman í hrærivél. Bætið eggjunum út í ásamt eggjarauðunni. Bætið vanilludropunum út í. Blandið þurrefnunum út í með sleif. Deigið er þykkt. Blandið súkkulaðibitunum og valhnetunum saman við.
Setjið deigð í bökunarformið og þrýstið því niður í formið, svo það sé þokkalega slétt. Bakið í 32-35 mínútur eða þar til þær eru ljósbrúnar á köntunum. Stingið hníf eða prjóni í deigið til að athuga hvort það sé tilbúið, ef prjóninn kemur hreinn upp er kakan tilbúin.
Leyfið kökunni að kólna í ca. klst áður en þið skerið hana niður og berið fram.